Fotbolti.net
23.10.12 - 06:00
Arnar Daði Arnarsson

Sverrir Þór skrifar undir hjá HK (Staðfest)

Þórir og Sverrir handsla samninginn og með þeim er Marteinn Kristjánsson úr meistaraflokksráði.

Þórir og Sverrir handsla samninginn og með þeim er Marteinn Kristjánsson úr meistaraflokksráði.

Canon

Mynd: Heimasíða HK

Í gærkvöldi skrifaði miðjumaðurinn, Sverrir Þór Garðarsson undir tveggja ára samning við HK en hann gengur til liðs við þá frá Víking R. Sverrir þekkir þó vel til í herbúðum HK því hann lék með þeim í sumar, á láni frá Víking R.
Sverrir sem er 21 árs gamall er uppalinn hjá Víkingi, en hann lék sumarið 2011 á láni hjá ÍH í 2.deildinni og spilaði síðan eins og fyrr segir með HK í sumar, og skoraði þar eitt mark í 17 leikjum.

,,Það er mjög ánægjulegt að hafa fengið Sverri til okkar fyrir fullt og fast. Hann sýndi það í sumar að hann er efnilegur leikmaður sem féll afar vel inní okkar hóp og hentar mjög vel okkar framtíðarplönum,\" sagði Þórir Bergsson formaður meistaraflokksráðs HK við heimasíðu HK eftir að skrifað hafi verið undir samninginn.

HK-ingar ætla sér stóra hluti í 2.deildinni næsta sumar, en nýr þjálfari er kominn í brúnna, sjálfur Gunnlaugur Jónsson.

Davíð Magnússon, einn af leikjahæstu meistaraflokksmönnum HK frá upphafi, hefur ákveðið að taka fram skóna á ný og hefja æfingar af fullum krafti með HK-liðinu þegar undirbúningurinn fyrir næsta tímabil hefst í lok þessarar viku. Davíð er 29 ára.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.