Fotbolti.net
23.10.12 - 14:00
Hafliði Breiðfjörð

Þóra Helgadóttir til Sydney í Ástralíu í vetur (Staðfest)

Þóra Björg Helgadóttir.

Þóra Björg Helgadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þóra Björg Helgadóttir landsliðsmarkvörður Íslands er að ganga til liðs við Western Sydney Wanderers í áströlsku kvennadeildinni en þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Þóra leikur með LdB Malmö í Svíþjóð en ætlar að spila í áströlsku deildinni á meðan sú sænska fer í frí í byrjun nóvember mánaðar.

,,Þetta hefur verið smá misskilningur, Ástralirnir voru búnir að gefa þetta út en Svíarnir ekki. Ég hef ekkert verið að tjá mig um þetta en ég held að það sé óhætt að segja frá þessu núna,\" sagði Þóra við Fótbolta.net í dag um vistaskiptin.

,,Þeir höfðu samband við umboðsmanninn minn og það gekk allt upp. Tímabilið þeirra er yfir undirbúningstímabilið hjá okkur svo þetta passar vel. Ég lít á þetta sem tækifæri sem er mjög skemmtilegt og að prófa eitthvað nýtt. Þetta verður frískandi, ég hef aldrei komið þarna svo þetta verður bara spennandi og öðruvísi hvíld.\"

Að lokum var Þóra spurð út í gæði fótboltans í Ástralíu? ,,Ég veit bara að ástralska landsliðið er gott,\" sagði hún. ,,Þeir eru að reyna að byggja upp deildina bæði karla og kvennamegin. Karlaliðið er að reyna að fá Del Piero og svona stór nöfn og það er sama kvennamegin. Þeir eru að fá amerískar landsliðsstelpur og að reyna að styrkja liðin. Ég veit að það er uppselt á Sydney grannaslaginn en ég missi því miður af honum.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.