Liklegt þykir að Harry Maguire snúi aftur í vörn Manchester United gegn Chelsea á morgun.
Maguire missti af leiknum gegn PSG í vikunni vegna smávægilegra meiðsla.
Axel Tuanzebe tók stöðu hans í vörninni og átti mjög góðan leik. Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, vildi ekki gefa upp dag hvort Tuanzebe byrji aftur í leiknum á Old Trafford á morgun.

Mason Greenwood verður líklega einnig klár á ný á morgun eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla. Anthony Martial er ennþá í leikbanni og Jesse Lingard og Eric Bailly eru meiddir.
Solskjær segist ekki vera búinn að ákveða hvort Edinson Cavani spili sinn fyrsta leik með Manchester United á morgun en hann hefur ekki spilað leik síðan í mars.
Athugasemdir