Fotbolti.net
23.11.26 - 19:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Glódís og stöllur með fullt hús stiga

Glódís og stöllur með fullt hús stiga
Canon

Mynd: EPA

Kvennaboltinn
Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Bayern Munchen í öðrum leiknum í röð í kvöld en hún er að snúa aftur eftir meiðsli.

Hún spilaði tæpan klukkutíma gegn Austria Vienna í Meistaradeildinni í vikunni.
Hún byrjaði síðan í kvöld og spilaði 74 mínútur í 1-0 sigri á Hoffenheim í þýsku deildinni. Edna Imade skoraði eina markið snemma leiks.

Bayern er á toppi deildarinnar með 33 stig eftir 11 umferðir, eða fullt hús stiga. Liðið er með sex stiga forystu á Wolfsburg.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.