23.11.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Magnús Ingi kveður Fram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Ingi Þórðarson hefur yfirgefið Fram eftir að samningur hans við félagið rann út.
Magnús er fæddur árið 1999 og er uppalinn Framari. Hann spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með Úlfunum í 4. deild árið 2017 og skoraði tvö mörk í tveimur leikjum.

Ári síðar spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Fram í næst efstu deild. Alls voru leikirnir 184 fyrir Fram og mörkin 29 talsins. Hann spilaði 20 leiki fyrir Njarðvík í 2. deild og skorað sjö mörk sumarið 2021.
Hann spilaði 19 leiki og skoraði sjö mörk á láni hjá Þrótti þegar liðið tryggði sér sæti í Bestu deildinni í gegnum umspilið í Lengjudeildinni síðasta sumar.
„Við þökkum Minga fyrir samveruna, mörkin og margar góðar stundir og óskum honum alls hins besta á nýjum vettvangi. Takk fyrir okkur, Mingi. Þú ert alltaf velkominn heim í Úlfarsárdal," segir í tilkynningu frá Fram.