Fotbolti.net
23.11.26 - 22:37
Elvar Geir Magnússon

Greiningafyrirtækið sem leiddi Swansea að Freysa

Freyr Alexandersson hefur náð áhugaverðum árangri með Rosenborg.

Freyr Alexandersson hefur náð áhugaverðum árangri með Rosenborg.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Samkvæmt veðbönkum er Freyr Alexandersson líklegastur til að taka við sem stjóri Swansea.

WalesOnline fjallar um að Freyr hafi skotist upp listann hjá veðbönkum en talað er um að greiningafyrirtækið Jamestown Analytics sé líklega miðpunkturinn í stjóraleit Swansea.
Freyr talinn líklegastur til að taka við Swansea
TENGT EFNI

Freyr talinn líklegastur til að taka við Swansea

Swansea tilkynnti í sumar að félagið hefði gert samning við Jamestown um að fá að nota greiningar og gögn fyrirtækisins til að skoða leikmenn og þjálfara.

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton and Hove Albion hefur notað Jamestown með góðum árangri en fyrirtækið er í eigu Tony Bloom, eiganda Brighton. Como á Ítalíu, Hearts í Skotlandi og Union Saint Gilloise notast við sama fyrirtæki.

„Þetta samstarf er mikill fengur fyrir félagið. Jamestown vinnur einungis með völdum hópi félaga og okkur þykir mikill heiður að fá nú að ganga til liðs við þann hóp,“ sagði Tom Gorringe, framkvæmdastjóri Swansea, þegar samningurinn var undirritaður.

Freyr hefur verið að gera frábæra hluti með Rosenborg í norsku deildinni en hann tók við liðinu í 15. sæti en liðið situr í dag í 4. sæti deildarinnar.
Tony Bloom, eigandi Brighton og Jamestown Analytics.

Tony Bloom, eigandi Brighton og Jamestown Analytics.

Canon

Mynd: EPA

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough16+1332
2Stoke City16+732
3Wolves16+931
4Birmingham16+1329
5West Brom16+829
6Southampton16+1627
7QPR16+727
8Swansea16+427
9Sheffield Utd16+625
10West Ham16+1424
11Norwich16+924
12Portsmouth16+223
13Blackburn16-122
14Wrexham16-121
15Cardiff City16-118
16Millwall16-518
17Bolton16-918
18Bristol City16-1018
19Charlton Athletic16-1117
20Lincoln City16-1215
21Watford16-1415
22Burnley16-911
23Derby County16-1810
24Preston NE16-179
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.