Fotbolti.net
23.11.26 - 21:17
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tarkowski hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rautt

Tarkowski hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rautt
Canon

Mynd: EPA

James Tarkowski var ekkert að bíða eftir niðurstöðu dómarans í leik Everton gegn Brentford í kvöld. Hann hljóp af velli áður en dómarinn sýndi honum rauða spjaldið.

Tarkowski braut á Yehor Yarmolyuk þegar hann fór með takkana í sköflunginn. Craig Pawson dómari leiksins fór í skjáinn.
Á meðan hann var að segja frá niðurstöðunni hefur Tarkowski mögulega séð niðurstöðuna á skjánum og hljóp af velli áður en Pawson reif upp rauða spjaldið.

Tarkowski er harður í horn að taka og hefur safnað 109 gulum spjöldum í 554 leikjum. Hann hefur fengið fjögur rauð spjöld en þetta var fyrsta rauða spjaldið hans í úrvalsdeildinni.

Úrvalsdeildarferill hans hófst fyrir tíu árum með Burnley.

Brentford er 2-0 yfir þegar seinni hálfleikur er nýhafinn en Keane Lewis-Potter skoraði bæði mörkin.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.