23.11.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Elías Rafn sneri aftur og hélt hreinu - Hjörtur fyrirliði

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Elías Rafn Ólafsson sneri aftur á völlinn í kvöld eftir meiðsli en hann hafði misst af níu leikjum hjá Midtjylland.
Hann var í markinu þegar Midtjylland vann 2-0 sigur á Bröndby í dönsku deildinni. Liðið missteig sig í síðustu umferð og gerði 2-2 jafntefli gegn Sonderjyske.

Þrátt fyrir það hefur liðið náð þriggja stiga forystu á FC Kaupmannahöfn í toppbaráttunni. Midtjylland er með 35 stig eftir 15 umferðir en FCK er með 32 stig. Liðin mæstast í næstu umferð þann 29. nóvember.
Hjörtur Hermannsson bar fyrirliðabandið þegar Gautaborg tapaði 3-1 gegn toppliði Hammarby í sænsku deildinni. Hann spilaði allan leikinn en Kolbeinn Þórðarson spilaði 82 mínútur. Gautaborg er með 39 stig eftir 29 umferðir í 10. sæti.