Fotbolti.net
23.12.18 - 17:30
Ívan Guðjón Baldursson

Frank de Boer tekinn við Atlanta (Staðfest)

Frank de Boer tekinn við Atlanta (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bandaríska félagið Atlanta United er búið að staðfesta ráðninguna á Frank de Boer sem þjálfara aðalliðsins.
De Boer gerði garðinn frægan sem leikmaður Ajax, Barcelona og hollenska landsliðsins. Hann gerði vel við stjórnvölinn hjá Ajax í sex ár en mistókst að sanna sig hjá Inter og Crystal Palace í kjölfarið.

De Boer hefur verið án atvinnu síðan hann var látinn fara frá Crystal Palace eftir aðeins tvo og hálfan mánuð við stjórnvölinn.

Atlanta er meðal bestu liða bandarísku MLS deildarinnar og vann úrslitakeppnina í ár undir stjórn Tata Martino, fyrrverandi þjálfara Barcelona og argentínska landsliðsins.

Það er því mikil pressa á De Boer sem vonast til að halda Miguel Almiron og Joseph Martinez, sem eru eftirsóttir af liðum í Evrópu, innan félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.