Fotbolti.net
23.12.18 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

ÍR fær sex leikmenn (Staðfest)

Reynir á 40 leiki að baki fyrir ÍR.

Reynir á 40 leiki að baki fyrir ÍR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍR er búið að staðfesta komu sex leikmanna til félagsins rétt fyrir jól og munu þeir fá tækifæri til að sanna sig með liðinu í 2. deildinni á komandi tímabili.
Ari Viðarsson og Reynir Haraldsson koma aftur til ÍR eftir dvöl hjá Létti í 4. deildinni síðasta sumar. Ari er fæddur 1994 og hefur verið iðinn við markaskorun í 4. deild. Reynir er fæddur 1995 og var fastamaður í byrjunarliði ÍR í 2. deildinni fyrir fjórum árum.

Það eru einnig fjórir nýir leikmenn sem koma til félagsins og eru þeir allir ungir, fæddir 1998 og 1999.

Ómar Atli Sigurðsson kemur frá Aftureldingu, Aron Dagur Heiðarsson frá SR, Sæmundur Sven Schepsky frá Elliða og Gunnar Óli Björgvinsson frá KH.

„Drengirnir eru boðnir hjartanlega velkomnir í Mjóddina, við hlökkum til að gera hjörtu þeirra #hvítblá!!!" segir á Facebook síðu ÍR.

„Allir verða þeir komnir með leikheimild þegar flautað verður til leiks í Reykjavíkurmótinu 5.janúar."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.