Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   fös 23. desember 2022 10:55
Brynjar Ingi Erluson
Landsliðsmarkvörður Mexíkó í Seríu A (Staðfest)
Mynd: Twitter
Mexíkóski landsliðsmarkvörðurinn Guillermo Ochoa er genginn til liðs við Salernitana í Seríu A á Ítalíu. Hann skrifaði undir samning út tímabilið.

Markvörður knái spilaði líklega sinn síðasta leik á heimsmeistaramóti er Mexíkó datt úr leik í riðlakeppni HM í Katar á dögunum.

Ochoa, sem er 37 ára gamall, var magnaður í marki Mexíkó á HM 2014 og 2018, en hann átti nokkur góð augnablik á mótinu í ár og varði meðal annars vítaspyrnu Robert Lewandowski í markalausa jafnteflinu gegn Póllandi.

Þrátt fyrir að hann sé kominn á efri árin í boltanum þá mun hann halda áfram að spila því í dag skrifaði hann undir samning við Salernitana í Seríu og gildir sá samningur út tímabilið.

Salernitana mun eiga möguleika á að framlengja samninginn um ár.

Ochoa spilaði síðast fyrir America í heimalandinu en þar áður lék hann fyrir Standard Liege, Malaga, Granada, Ajaccio og San Luis.
Athugasemdir
banner