24.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Sommeil til Manchester City (Staðfest)
David Sommeil varnarmaður Bordeaux er á leið til Manchester City en hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning í gær.
,,Ég gerði þriggja og hálfsárs samning við Manchester í morgun og æfði í fyrsta sinn með félaginu." sagði Frakkinn á heimasíðu sinni en til stóð að hann kæmi til City fyrir hálfum mánuði en City náði þá ekki að semja við franska félagið.
