24.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Xavier til Galatasaray. (Staðfest)
Abel Xavier varnarmaður Liverpool er genginn til liðs við Galatasaray og verður þar næsta árið í láni. Að lánssamningnum loknum fær tyrkneska félagið kost á að kaupa Xavier. Xavier kom til Liverpool fyrir ári síðan á 800 þúsund pund frá Everton þegar meiðsli og leikbönn settu strik í reikninginn hjá félaginu.
