Þjóðadeildin: Ísland mætir Belgíu og Sviss

Ísland mætir Belgíu. Hér er Alfreð Finnbogason með boltann í vináttuleiknum í Brussel 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Svisslendingar komu síðast í heimsókn á Laugardalsvöll árið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spánverjar eru með Englendingum í riðli fjögur.

Mynd: Getty Images

Ísland mætir Belgíu. Hér er Alfreð Finnbogason með boltann í vináttuleiknum í Brussel 2014.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Belgar eru í fimmta sæti á heimslista FIFA og eru með margar stjörnur í sínum leikmannahópi. Þar má nefna leikmenn eins og Eden Hazard, Kevin de Bruyne og Romelu Lukaku.
Ísland mætti Belgíu síðast í vínáttuleik í Brussel árið 2013 en þar höfðu Belgar betur 3-1.
Ísland var með Sviss í riðli í undankeppni HM 2014 en Jóhann Berg Guðmundsson skoraði þar eftirminnilega þrennu í 4-4 jafntefli liðanna í Bern.
Í riðli 1 eru stórar fótboltaþjóðir saman en það eru Frakkland, Holland og Þýskaland. Ítalía, Portúgal og Pólland eru í riðli 3 og England, Króatía og Spánn í riðli fjögur.
Það verður að viðurkennast að við hefðum getað fengið meira sexí riðil! Svona lítur A-deildin út (Staðfest) #fotboltinet pic.twitter.com/oKN0z7N9rM
— Fótbolti.net (@Fotboltinet) January 24, 2018
Leikið er heima og að heiman í Þjóðadeildinni í september, október og nóvember á þessu ári.
Sigurliðið í hverjum riðli fer í úrslitakeppni í júní 2019 en neðsta liðið í riðlinum fellur niður í B-deild í Þjóðadeildinni. Á næsta ári fer úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar fram og Þjóðadeildameistari krýndur.
Góður árangur í Þjóðadeildinni getur svo virkað sem varaleið inn í úrslitakeppni EM ef illa fer í undankeppni mótsins. Með þessari nýju keppni fækkar vináttulandsleikjum til muna.
Riðill 1:
Frakkland
Holland
Þýskaland
Riðill 2:
Belgía
Sviss
Ísland
Riðill 3:
Ítalía
Portúgal
Pólland
Riðill 4:
England
Króatía
Spánn
Sjá einnig:
Úr útvarpsþættinum - Kennsla í Þjóðadeildinni og leikmenn á faraldsfæti

Svisslendingar komu síðast í heimsókn á Laugardalsvöll árið 2012.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spánverjar eru með Englendingum í riðli fjögur.

Mynd: Getty Images
