Fotbolti.net
24.01.18 - 12:04
Fótbolti.net

Twitter - Íslenskasta í heimi að fá Belgíu og Sviss

Belgar koma á Laugardalsvöll í haust.

Belgar koma á Laugardalsvöll í haust.

Canon

Mynd: Getty Images

Utan Vallar
Ísland verður með Belgíu og Sviss í riðli í Þjóðadeildinni en dregið var í riðla í dag.

Ekki er hægt að segja að þessi dráttur hafi vakið mikla lukku hjá Íslendingum en margir höfðu vonast eftir að fá stærri þjóðir í heimsókn á Laugardalsvöll.

Hér að neðan má sjá viðbrögð fólks á Twitter.

Kynþokkamunurinn á mannamáli á riðli 1 og riðli 2 í A-deild. pic.twitter.com/S2l3AXQPJR

— Rikki G (@RikkiGje) January 24, 2018

Allir fyrir dráttinn í þjóðadeildinni: Loksins koma stærstu knattspyrnuþjóðirnar að spila við okkur á Laugardalsvelli
Íslenskasta í heimi að fá Belgíu og Sviss #fotboltinet

— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) January 24, 2018

Það verður að viðurkennast að við hefðum getað fengið meira sexí riðil! Svona lítur A-deildin út (Staðfest) #fotboltinet pic.twitter.com/oKN0z7N9rM

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) January 24, 2018

Var eiginlega viss um að við myndum dragast með Króötum þrátt fyrir að það átti ekki að vera hægt #íslandsvinir #fotboltinet #fotbolti

— Birkir Gretarsson (@birkirorn) January 24, 2018

Riðillinn okkar breyttist úr því að vera 4 sýningarleikir gegn flottum liðum í að vera alvöru keppni sem við getum unnið.

— Daníel Rúnarsson (@danielrunars) January 24, 2018

Svisslendingar virtust ekki nenna að spila í umspilinu fyrir HM, þeir munu aldrei nenna þessari þjóðardeild.

— HrafnkellFreyr (@hrafnkellfreyr) January 24, 2018

Fáum De Bruyne, Hazard og Lukaku á Laugardalsvöll. Það er eitthvað #fotboltinet pic.twitter.com/qEvA22sA3M

— Magnús Már Einarsson (@maggimar) January 24, 2018

Þetta er kannski eini riðillinn sem við vinnum bara. Skemmtilegt setup hjá UEFA.

— Magnús Sigurbjörnsson (@sigurbjornsson) January 24, 2018

Væri næs að fá báða útileikina í einu landsleikjahléi, taka menningarlega boltareisu til Belgíu og Sviss. Ó, the bjór and the súkkulað and the fótbolt! 😋🍫🍻⚽️ #fótboltinet #áframÍsland

— Halldór Marteins (@halldorm) January 24, 2018

Sá þrotariðill! #Spoiled

— Hjörtur Hjartar (@hjorturh) January 24, 2018

Jóhann Berg hlýtur að fagna Sviss. Tækifæri til að setja fyrstu fernu landsliðsmanns í keppnisleik.

— Kolbeinn Tumi (@kolbeinntumi) January 24, 2018

Eins og að bíða nauta rib-eye en fá svo vegan-hnetusteik. Veist að steikin er þyngri í maga og óhollari en á allan hátt svo miklu betri #NationsLeague #fotboltinet

— Pétur Sæmundsen (@PeturSaem) January 24, 2018

Ertu ánægð/ur með riðil Ísland í Þjóðadeildinni? #fotboltinet

— Fótbolti.net (@Fotboltinet) January 24, 2018

Sviss er á HM en ekki Ítalía og Belgía er ofar á FIFA listanum en Spánn og hafa sterkari hóp en Portúgal. Skil ekki þetta kvart í fólki að þetta sé vonbrigða riðill? Hugsið ykkur vonbrigðin ef Ísland væri ennþá svo lélegt að riðill 3 í D deild væri hlutskipti okkar #fotboltinet

— Baldvin Már (@baldvinmb) January 24, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.