Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. janúar 2020 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Giroud endar hjá Inter - Politano á leið til Napoli
Mynd: Getty Images
Ítalskir fréttamenn eru sammála um að Olivier Giroud muni enda hjá Inter áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.

Giroud verður samningslaus næsta sumar og óljóst er hversu háa upphæð Inter þarf að borga fyrir franska landsliðsmanninn.

Antonio Conte vildi fá Fernando Llorente frá Napoli en ekkert varð úr þeim skiptum því Napoli getur ekki misst sóknarmann frá sér á miðju tímabili.

Matteo Politano, sem virtist á leið til Roma fyrr í janúar, er þá á leið til Napoli. Hann fer á hálfs árs lánssamning með kaupskyldu.

Napoli greiðir í heildina 25 milljónir evra fyrir Politano. Peningurinn verður greiddur næsta sumar til að forðast refsingu vegna brota á háttvísisreglum í fjármálum.
Athugasemdir
banner
banner
banner