Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. janúar 2020 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds búið að krækja í Poveda frá Man City (Staðfest)
Ian Poveda er fæddur á Englandi. Þó á hann fleiri spænsk nöfn heldur en ensk.
Ian Poveda er fæddur á Englandi. Þó á hann fleiri spænsk nöfn heldur en ensk.
Mynd: Getty Images
Leeds er búið að staðfesta komu kantmannsins Ian Carlo Poveda-Ocampo úr herbúðum Manchester City.

Leeds fékk samkeppni frá Torino um kaup á leikmanninum en Poveda hefði orðið samningslaus næsta sumar. Kaupverðið er óuppgefið en talið vera mjög lágt.

Jack Gaughan, fréttamaður Daily Mail, heldur því fram að Leeds greiði ekkert fyrir Poveda, aðeins mögulega eina milljón punda sem árangurstengda greiðslu. City fær þó 30% af kaupverðinu þegar Poveda verður seldur næst.

Poveda verður tvítugur í febrúar. Hann æfði í akademíum Chelsea, Arsenal, Barcelona og Brentford áður en hann gekk í raðir Man City sumarið 2016.

Hann hefur skorað 8 mörk í 15 leikjum fyrir U18, U19 og U20 landslið Englands og þótti standa sig vel með ungu varaliði City sem vann Burton Albion 1-0 í seinni undanúrslitaleik deildabikarsins fyrir ári síðan.

Poveda er búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við Leeds og mun hjálpa þeim í toppbaráttu Championship deildarinnar í vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner