Manchester City gerði jafntefli gegn Southampton og Liverpool náði að saxa á forskotið með því að vinna Crystal Palace. Chelsea vann Tottenham í Lundúnaslag, Arsenal gerði markalaust jafntefli gegn Burnley og Leicester gerði 1-1 jafntefli gegn Brighton.
Í fallbaráttunni vann Newcastle mikilvægan sigur gegn Leeds og Norwich vann 3-0 gegn Watford. Everton heldur áfram í vandræðum en liðið tapaði gegn Aston Villa.
Flautumark færði Manchester United 1-0 sigur gegn West Ham á Old Trafford og Wolves vann Brentford 2-1. Garth Crooks hjá BBC er búinn að velja úrvalslið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni.

Markvörður - Alisson (Liverpool) - Hafði nóg að gera gegn Crystal Palace, var vel á verði og bjargaði Liverpool.
Varnarmaður: Kyle Walker-Peters (Southampton) - Átti góðan leik og skoraði gegn ósannfærandi liði Manchester City.
Varnarmaður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Palace sleppti honum lausum í hornspyrnu og Hollendingurinn þakkaði fyrir sig með því að stanga boltann inn.
Varnarmaður: Thiago Silva (Chelsea) - Hugsar ótrúlega vel um sig og eldist eins og gott rauðvín. Skoraði gegn Tottenham.
Miðjumaður: Bruno Fernandes (Man Utd) - Að stíga upp á mikilvægum tímapunkti fyrir Manchester United.
Sóknarmaður: Josh Sargent (Norwich) - Bandaríkjamaðurinn ungi skoraði tvennu í nauðsynlegum sigri Norwich.
Sóknarmaður: Marcus Rashford (Man Utd) - Er búinn að skora í tveimur leikjum í röð og er að endurheimta sjálfstraustið.
Athugasemdir