Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 24. janúar 2023 23:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Isak ánægður með stuðninginn: Ég missti mig svolítið
Mynd: EPA

Alexander Isak framherji Newcastle var ánægður með sigur liðsins á Southampton á St Mary's í enska deildabikarnum í kvöld.


Isak kom inn á af bekknum og lagði upp sigurmarkið á Joelinton.

Isak var í viðtali á heimasíðu Newcastle eftir leikinn en hann var spurður út í stuðninginn á leiknum.

„Þetta var magnað. Við skoruðum og ég missti mig smá og stökk yfir. Það er magnað hvernig þeir láta okkur líða eins og við séum að spila á heimavelli, maður heyrir í þeim núna, manni leið eins og við værum á heimavelli og ég gef þeim mikið hrós fyrir að búa til þetta andrúmsloft," sagði Isak.


Athugasemdir
banner
banner
banner