Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 24. janúar 2023 18:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Troost-Ekong til Salernitana á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images

William Troost-Ekong er genginn til liðs við Salernitana á Ítalíu en hann kemur til liðsins frá Watford.


Hann fer á láni út þessa leiktíð en ítalska liðið getur fest kaup á honum ef liðinu tekst að halda sæti sínu í efstu deild.

Troost-Ekong er 29 ára gamall nígerískur landsliðsmaður en hann hefur leikið 68 leiki, þar af 15 á þessari leiktíð með Watford en hann gekk til liðs við félagið árið 2020 frá Udinese.

Salernitana er í 16. sæti, sex stigum frá fallsæti þegar deildin er hálfnuð.


Athugasemdir
banner
banner
banner