Fotbolti.net
24.02.19 - 20:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sarri um Kepa: Þetta var stór misskilningur

Maurizio Sarri.

Maurizio Sarri.

Canon

Mynd: Getty Images

Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, gerði lítið úr atvikinu sem átti sér stað undir lok framlengarinnar í úrslitaleik deildabikarsins gegn Manchester City núna áðan. Kepa Arrizabalaga, markvörður Chelsea, neitaði þá að fara út af.

Sjá einnig:
Myndband: Kepa neitaði að fara af velli - Sarri brjálaður
„Ég misskildi stöðuna og átta mig bara á stöðunni þegar læknirinn kom aftur á bekkinn."

„Þetta var stór misskilningur. Ég hélt að markvörðurinn væri með krampa og gæti ekki tekið þátt í vítaspyrnukeppninni. En þetta var ekki krampi og hann gat farið í vítaspyrnukeppnina."

„Ég hef talað við Kepa, en bara til að fá nánari útskýringu. Núna skil ég."

„Í dag er ég stoltur af leikmönnunum," sagði Sarri og bætti hann því við að staða hans hjá félaginu sé sú sama og hún fyrir leikinn.

Er að verja leikmanninn
John Terry, fyrrum fyrirliði Chelsea, var sérfræðingur Sky Sports í kringum leikinn. Hann segir að Sarri hafi verið að verja leikmanninn sinn.

„Hann er að verja leikmanninn. Ég veit ekki hvort það er búið að taka á þessu máli. Þetta er sú leið sem hann tekur í fjölmiðlum," sagði Terry.
Kepa neitaði að fara út af.

Kepa neitaði að fara út af.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.