Fotbolti.net
24.02.20 - 19:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Liverpool og West Ham: Henderson meiddur

Naby Keita kemur inn fyrir Henderson. Hér fagnar hann marki með Mohamed Salah.

Naby Keita kemur inn fyrir Henderson. Hér fagnar hann marki með Mohamed Salah.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool tekur á móti West Ham United í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 20:00.
Liverpool hafði betur er liðin mættust á London Stadium fyrir tæpum mánuði síðan. Mohamed Salah skoraði þá úr vítaspyrnu og lagði upp fyrir Alex Oxlade-Chamberlain í 0-2 sigri.

Liverpool er með 19 stiga forystu og á leik til góða á ríkjandi meistara Manchester City sem sitja í öðru sæti. West Ham er í fallsæti, einu stigi frá öruggu sæti.

Hjá toppliði ensku úrvalsdeildarinnar er fyrirliðinn Jordan Henderson meiddur. Hann kemur út úr liðinu fyrir Naby Keita. Það er eina breytingin sem Jurgen Klopp gerir frá 1-0 tapinu gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Hjá West Ham byrjar óvænt hinn 19 ára gamli Jeremy Ngakia í vörninni. Hann er hægri bakvörður sem er að spila sinn annan leik í ensku úrvalsdeildinni. Hans eini leikur til þessa kom einnig gegn Liverpool í síðasta mánuði.

Felipe Anderson kemur einnig inn í byrjunarlið West Ham og er Jarrod Bowen, sem var fenginn frá Hull City á gluggadegi, á bekknum.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðin.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Robertson, Van Dijk, Gomez, Fabinho, Keita, Wijnaldum, Mane, Salah, Firmino.
(Varamenn: Adrian, Lovren, Oxlade-Chamberlain, Minamino, Lallana, Origi, Matip)

Byrjunarlið West Ham: Fabianski, Cresswell, Ngakia, Diop, Ogbonna, Noble, Rice, Soucek, Snodgrass, Anderson, Antonio.
(Varamenn: Randolph, Balbuena, Zabaleta, Lanzini, Bowen, Fornals, Haller)
Hinn 19 ára gamli Jeremy Ngakia byrjar sinn annan úrvalsdeildarleik. Hinn leikurinn kom einnig gegn Liverpool.

Hinn 19 ára gamli Jeremy Ngakia byrjar sinn annan úrvalsdeildarleik. Hinn leikurinn kom einnig gegn Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.