Jason Burt, sem er yfir fótboltaskrifum hjá Telegraph, setur stórt spurningamerki við það að Ben White hafi verið kallaður inn í enska landsliðið frekar en til dæmis Trent Alexander-Arnold.
White er kominn aftur í enska landsliðið eftir langa fjarveru, en Trent var á sama tíma ekki valinn. Sú ákvörðun hefur komið mörgum á óvart.
White er kominn aftur í enska landsliðið eftir langa fjarveru, en Trent var á sama tíma ekki valinn. Sú ákvörðun hefur komið mörgum á óvart.
„Tvö atriði við ákvörðun Thomas Tuchel um að velja Ben White í enska landsliðið vekja athygli," skrifar Burt og heldur áfram:
„Í fyrsta lagi virðist þetta vera skýr staðfesting á því að Tuchel meti Trent Alexander-Arnold ekki mikils, eða telji hann ekki passa inn í sínar áætlanir. Það er auðvitað ákvörðun landsliðsþjálfarans, sem ber ábyrgð á því að ná árangri og taka stórar ákvarðanir. Engu að síður kemur þetta á óvart."
„Þetta sýnir hversu langt Alexander-Arnold hefur fallið niður goggunarröðina hjá landsliðinu. Skýring Tuchel, að hann viti hvað leikmaðurinn geti gert fyrir England stenst ekki alveg, sérstaklega í ljósi þess að Trent hefur aðeins spilað 27 mínútur undir hans stjórn," skrifar blaðamaðurinn.
Hann setur þó stórt spurningamerki við það að White sé valinn á kostnað Alexander-Arnold. Hann hefur ekki verið valinn síðan að hann yfirgaf hópinn á HM í Katar árið 2022 vegna persónulegra ástæðna. Í kjölfarið gaf hann ekki kost á sér á meðan Gareth Southgate var landsliðsþjálfari.
„Samkvæmt Telegraph Sport má rekja ágreininginn sem varð til þess að Ben White yfirgaf enska landsliðið á HM í Katar til ummæla frá Steve Holland, aðstoðarþjálfara Gareth Southgate. Holland á að hafa látið falla athugasemd fyrir framan liðsfélaga White. Hún þótti saklaus á þeim tíma og ekkert rifrildi skapaðist, en White var engu að síður það ósáttur að hann yfirgaf æfingabúðir liðsins í Doha."
„Í kjölfarið gerði hann það ljóst að hann vildi ekki spila aftur fyrir England á meðan Southgate og Holland væru við stjórnvölinn. Nú er hann hins vegar kominn aftur í landsliðið," skrifar Burt og kallar eftir því að White útskýri mál sitt. „Að hafna því að spila fyrir landsliðið í svo langan tíma og snúa svo aftur kallar augljóslega á skýringu."
Athugasemdir

