„Davíð Örn Atlason er leikmaður sem ég ætla að hlaða á pressu fyrir tímabilið," segir íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór Þórðarson.
Tómas og Elvar voru með sérstakan upphitunarþátt fyrir Pepsi Max-deildina á X977 síðasta laugardag.
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn
Tómas og Elvar voru með sérstakan upphitunarþátt fyrir Pepsi Max-deildina á X977 síðasta laugardag.
Smelltu hér til að hlusta á þáttinn
Davíð Örn, hægri bakvörður Víkinga, fékk pressu frá Tómasi í þættinum.
„Að mínu mati gæti hann spilað fyrir öll liðin í deildinni og þau myndu bara styrkjast eða vera jafn góð. Hann er bara einn besti hægri bakvörður deildarinnar," segir Tómas en hann benti á styrkleika í varnarleik Víkinga.
„Þú ert með einn besta hægri bakvörð deildarinnar og svo ertu með Sölva Geir Ottesen, sem er besti miðvörðurinn þegar hann er heill."
Víkingur spilar opnunarleik Pepsi Max-deildarinnar, gegn Val á Hlíðarenda, á föstudagskvöld.
Pepsi Max-deildin:
föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)
Smelltu hér til að hlusta á upphitunarþátt deildarinnar
Athugasemdir