Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
Óskar Smári: Þessi leikur frábært sýnisdæmi fyrir þessa deild
„Mjög jákvætt að fá Bryndísi inn“
„Það hefði verið ótrúlega gott að hafa hana“
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin
Valdimar framlengir í Njarðvík (Staðfest)
Sterkastur í 3. umferð - Ætla rétt að vona það
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Adam Páls: Var bara kominn tími á að borga til baka
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
   fös 24. apríl 2026 23:27
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Byrjunin var frekar vond. Ég held að við vorum ekki tilbúnir. Svo þeir voru harðir á okkur. Frá fyrstu mínútu, markvörðurinn bjargaði okkur. Svo seinna þá náðum við að verja vel, jafnvel hálf sjensa, efnilegar sóknir. Fyrsti hálfleikur var fínn, svo í seinni hálfleik var það köld sturta. Markið kom á fyrstu eða annari mínútu í seinni hálfleik og orkan sem við vorum með í seinni hálfleik fór niður. Stuttu seinna fengum við á okkur tvö létt mörk og þá var búið að ákveða leikinn" sagði Nenad Zivanovic þjálfari Ægir, eftir 3-0 tap á útivelli í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar.


Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  0 Ægir

Myndir þú segja að þetta var leikur tveggja hálfleika?

„Já, eitthvað þannig. Fyrsti hálfleikur var fínn, fyrir utan fyrstu tíu mínútur. Svo seinna var það eitthvað sem ég get sætt mig við., en seinni hálfleikur var alls ekki góður. Taktískt vorum við ekki að takast á við formið þeirra, hlaupin inn á milli, hvernig þeir voru í hálf svæðunum, hvernig þeir voru að tvöfalda á kantinum: Við blokkuðum ekki fyrirgjafirnar hjá þeim, þetta var mjög erfitt varnarlega."

Ertu ánægður með varnar frammistöðuna í fyrri hálfleik?

„Ég get ekki sagt fyrir fram. Ég verð að sjá hvernig leikurinn okkar mun þróast. Örugglega erum við ekki færir á að spila opna leiki, svona rokk og ról leiki sem nýliðar í þessari deild. Fara hátt, há pressa. Við verðum að aðlagast að þessari deild, við erum enn ekki nægilega góðir, ekki enn. En ef þú lítur á veturinn, við erum enn að móta liðið okkar, kannski eftir einn mánuð munum við vera komnir í standið sem ég vil að við verðum komnir í. Þá að ná ákveðni hreysti sem ég held gerir okkur kleyft að keppa. Eftir að við náum því þá get ég litið á aðra valkosti, hvað við getum gert, hvort að við séum að fara að spila sama leikkerfi eða leikstíl."

Er eitthvað jákvætt sem þú getur tekið út úr þessum leik fyrir næsta?

„Klárlega, viljinn hjá leikmönnunum mínum, þeirra löngun að vinna leikinn. Taktískt fyrsti hálfleikur, frá tíundu mínútu að fjörutíu og fimmtu mínútu var fínn. Smá lítil mistök en fótbolti er leikur mistaka. Við líka bjuggum til nokkur færi sem er líka jákvætt, við vorum óheppnir að nýta okkur ekki þau. Klárlega er fyrri hálfleikur taktískt og hvernig við vorum að verja í lág blokk svo nokkrar skyndisóknir voru fínar en flestar af þeim fóru ekki neitt."

Má segja að þið tapið fókus í byrjun seinni hálfleik?

„Þetta var þannig að við unnum boltann svo að við ættum að halda boltanum og það var stór mannleg mistök. Leikmaðurinn vildi dribbla með hann sem síðasti varnarmaður, hann verður svo tæklaður og þá fá þeir boltann, þá kemur skyndisókn og þeir skora þar sem við erum ekki að verja. Ef þetta gerist ekki, ef við fáum ekki mark á okkur svona snemma, þú veist hvernig þetta er ef tíminn heldur áfram þá verða þeir sem eru sigurstranglegari taugaóstyrkari. Þannig að færin okkar verða bara betri en við fáum á okkur mark snemma og það var erfiðara seinna."



Slapp
banner
banner
banner