Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 24. maí 2020 17:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leikmenn Sevilla héldu sundlaugarpartý
Mynd: Valeria Juan / Ever Banega
Fjórir leikmenn Sevilla eru í vandræðum eftir að hafa gerst sekir um að brjóta reglur um sóttkví vegna kórónuveirunnar.

Mikil hitabylgja ríður yfir suðurhluta Evrópu þessa dagana og var 37 stiga hiti þegar Ever Banega, Lucas Ocampos, Franco Vazquez og Luuk de Jong ákváðu að halda sundlaugarpartý með konum sínum og kærustum.

Eiginkona Banega birti mynd af hópnum á samfélagsmiðlum en hún var fljótt tekin niður. Skaðinn var þó skeður og lifir myndin áfram í netheimum.

Spænska tímabilið á að fara aftur af stað í júní og er Sevilla í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti, með 47 stig eftir 27 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner