mið 24. maí 2023 15:10
Elvar Geir Magnússon
Mount og Gilmour ofsóttir af eltihrelli
Orla Melissa Sloan.
Orla Melissa Sloan.
Mynd: Daily Star
TikTok stjarnan Orla Melissa Sloan, 21 árs, hefur viðurkennt að hafa ofsótt fótboltamennina Mason Mount og Billy Gilmour ásamt því að hafa áreitt þann þriðja, Ben Chilwell.

Sloan og Mason Mount, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, sváfu saman eftir gleðskap sem haldinn var á heimili Chilwell í nóvember 2020. Þau héldu svo sambandi í sex mánuði, áður en Mount ákvað að slíta því.

Sloan lét Mount hinsvegar ekki í friði í kjölfarið og áreitti hann með fjölda skilaboða svo hann lét loka á númerið hennar. Hann fór þá að fá skilaboð frá henni í gegnum önnur númer en alls notaði hún 21 mismunandi símanúmer til að senda honum skilaboð.

Mount lagði á endanum fram kæru og sagði við dómstóla að Sloan væri haldin alvarlegri þráhyggju gagnvart sér. Hann segist hafa óttast hvað hún gæti gert á endanum og var hræddur um að hún myndi mæta á æfingasvæði Chelsea.

Sloan sendi einnig skilaboð á vini og fjölskyldumeðlimi Mount, þar á meðal til liðsfélaga hans Chilwell.

Skoski miðjumaðurinn Gilmour, sem var hjá Chelsea en er nú hjá Brighton, fékk skilaboð frá Sloan og segir þau hafa haft mikil áhrif á líf sitt. Hann átti í vandræðum með svefn og þurfti að taka svefntöflur. Skilaboðin eru sögð hafa verið alvarlegar hótanir í hans garð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner