Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. maí 2023 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Xavi: Erfitt fyrir okkur að undirbúa okkur fyrir þessa leiki
Mynd: Getty Images

Xavi, stjóri Barcelona viðurkenndi í gær eftir tap liðsins gegn Valladolid að hann hafi átt erfitt með að mótivera leikmenn í leikinn.


Barcelona hefur þegar tryggt sér spænska titilinn en Valladolid berst fyrir sæti sínu í deildinni og komst upp úr fallsæti með sigrinum.

Xavi segir að Barcelona liðið hafi ekki gefið nógu mikið í leikinn í gær.

„Það er erfitt fyrir okkur að undirbúa okkur fyrir þessa leiki þar sem markmiðinu hefur verið náð. Þessi úrslit koma þar sem það vantaði upp á ákefð en við reyndum. Við fengum dauðafæri í fyrri hálfleik en duttum niður í seinni," sagði Xavi.


Athugasemdir
banner