Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 24. júní 2021 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wilshere um brottrekstur Bould: Hvað er í gangi?
Steve Bould.
Steve Bould.
Mynd: Getty Images
Arsenal tilkynnti það formlega í vikunni að Steve Bould hefði verið látinn fara frá félaginu.

Bould starfaði fyrir Arsenal í meira en 30 ár. Þessi 58 ára gamli þjálfari hefur undanfarin tvö ár séð um U23 lið Arsenal en hann hefur nú verið rekinn. Bould er einnig fyrrum leikmaður Arsenal en hann spilaði með liðinu í 11 ár eða frá 1988 til 1999.

Per Mertesacker, sem er yfirmaður akademíu Arsenal, sagði að ákvörðunin hefði verið erfið.

Jack Wilshere, fyrrum leikmaður Arsenal, tjáði sig á Twitter. Bould þjálfaði Wilshere, en miðjumaðurinn skilur ekkert í þessum fréttum.

„Ég trúi þessu ekki. Alvöru Arsenal maður farinn! Hvað er í gangi?" skrifaði Wilshere á Twitter og bætti við: „Frábær þjálfari og frábær náungi. Ég óska þér alls hins besta Bouldy."

Arsenal hafnaði í áttunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, það er að segja aðallið félagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner