24.07.26 - 22:55
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild: Fjölnir stöðvaði topplið Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Kári

Mynd: Fjölnir

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það fóru tveir leikir fram í 2. deild karla fyrr í kvöld þar sem Fjölnir stöðvaði sigurgöngu toppliðs Hauka sem hefði getað komist í tímabundna átta stiga forystu með sigri.
Egill Otti Vilhjálmsson og Viktor Andri Hafþórsson reyndust hetjurnar í Grafarvoginum þegar þeir skoruðu sitthvort markið með fimm mínútna millibili í fyrri hálfleik.
Fjölnir leiddi 2-0 þar til Ólafur Darri Sigurjónsson minnkaði muninn á lokakaflanum, en nær komust Hafnfirðingar ekki. Lokatölur urðu því 2-1 fyrir Fjölni.
Haukar eru með fimm stiga forystu á toppi deildarinnar sem stendur, með 29 stig eftir 14 umferðir. Fjölnir er í fjórða sæti með 21 stig. Fjölnismenn töpuðu 5-2 gegn Magna á Grenivík í síðustu umferð og svöruðu menn fyrir sig í kvöld.
Í hinum leik kvöldsins hafði Kári betur á útivelli gegn Hvíta riddaranum. Kári fer upp í 2. sæti deildarinnar með sigri, þar sem liðið á 24 stig eftir 14 umferðir.
Grétar Jónatan Pálmason skoraði eina markið í fyrri hálfleik skömmu fyrir leikhlé áður en Árni Salvar Heimisson tvöfaldaði forystuna í síðari hálfleik.
Alexander Aron Tómasson var fljótur að minnka muninn fyrir heimamenn en Matthías Daði Gunnarsson gerði út um viðureignina á 81. mínútu, svo lokatölur urðu 1-3.
Hvíti riddarinn situr eftir í fallsæti með 13 stig eftir 14 umferðir.
Fjölnir 2 - 1 Haukar
1-0 Egill Otti Vilhjálmsson ('31 )
2-0 Viktor Andri Hafþórsson ('36 )
2-1 Ólafur Darri Sigurjónsson ('79 )
Hvíti riddarinn 1 - 3 Kári
0-1 Grétar Jónatan Pálmason ('44 )
0-2 Árni Salvar Heimisson ('63 )
1-2 Alexander Aron Tómasson ('65 )
1-3 Matthías Daði Gunnarsson ('81 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 14 | +17 | 29 |
| 2 | Kári | 14 | +15 | 24 |
| 3 | Selfoss | 13 | +3 | 23 |
| 4 | Fjölnir | 14 | +5 | 21 |
| 5 | Kormákur/Hvöt | 13 | +14 | 20 |
| 6 | Dalvík/Reynir | 13 | +1 | 20 |
| 7 | Víkingur Ó. | 13 | -5 | 18 |
| 8 | KFA | 13 | +4 | 14 |
| 9 | Magni | 13 | -17 | 14 |
| 10 | Þróttur V. | 13 | -5 | 13 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 14 | -8 | 13 |
| 12 | KFG | 13 | -24 | 12 |