Fotbolti.net
24.07.26 - 20:07
Ívan Guðjón Baldursson

Mjólkurbikar kvenna: Þórdís Nanna skaut Þrótti í úrslit - Sjáðu markið

Mjólkurbikar kvenna: Þórdís Nanna skaut Þrótti í úrslit - Sjáðu markið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Þróttur R. 1 - 0 ÍBV
1-0 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('80)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 ÍBV
Þróttur R. er búið að tryggja sér farmiða í úrslitaleik Mjólkurbikarsins 2026 eftir nauman sigur á ÍBV í undanúrslitaleiknum.

Heimakonur voru sterkara liðið í tíðindalitlum fyrri hálfleik og var staðan markalaus í leikhlé.

Vestmannaeyingar byrjuðu seinni hálfleikinn betur en aftur var afar lítið um færi í lokuðum leik. Þróttur tók þó stjórn á leiknum í seinni hluta síðari hálfleiks og skoraði Þórdís Nanna Ágústsdóttir á 80. mínútu eftir slaka markspyrnu Eyjakvenna. Boltinn barst til Bríetar Fjólu Bjarnadóttur sem lét vaða og réði Arden Joy La-Rose ekki nægilega vel við boltann.

Arden varði boltann út í teig þar sem Þórdís Nanna náði fyrst til hans og kom honum í netið þrátt fyrir að vera umkringd bláum treyjum.

ÍBV átti engin svör og skapaði ekki mikla hættu til að jafna metin. Þess í stað komust Þróttarar nær því að tvöfalda forystuna og áttu mögulega að fá dæmda vítaspyrnu fyrir hendi, en fengu ekki.

Lokatölur urðu því 1-0 og mun Þróttur mæta annað hvort Fram eða Grindavík/Njarðvík í úrslitaleiknum.

Mjólkurbikar kvenna: Þórdís Nanna skaut Þrótti í úrslit - Sjáðu markið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.