Jelena Tinna: Ég vissi að við myndum taka þetta

Jelena Tinna Kujundzicm, leikmaður Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jelena Tinna Kujundzicm, leikmaður Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara geggjuð, loksins erum við komnar. Við erum búnar að vinna svo mikið að þessu og við ætlum að taka þetta núna,“ sagði Jelena Tinna Kujundzicm, leikmaður Þróttar, eftir að liðið tryggði sér miða í úrslitaleik Mjólkurbikarsins fyrr í dag eftir sigur á ÍBV.
„Mér fannst við alveg vera bara mjög góðar allan tímann og við sýndum bara alvöru karakter og við tókum þetta“ sagði hún, aðspurð hvernig hún mæti þennan leik.
Leikurinn var í járnum allan tímann, hvernig leið þér inn á vellinum?
„Ég var aldrei eitthvað þannig séð stressuð sko. Við treystum hvor annari og ég vissi að við myndum taka þetta.“
Jelena segir að úrslitin í dag geti klárlega gefið þeim byr undir báða vængi í deildinni þar sem gengið hefur verið brösulegt undanfarið.
„Já klárlega. Þetta sýnir bara að við eigum meira inni og við ætlum að nota þetta og fara að taka næstu leiki.“
Þróttur fór síðast í úrslit bikarsins árið 2021 en þar mættu þær Blikum í leik sem þær grænklæddu unni 4-0. Jelena spilaði allan þann leik og segist eiga harm að hefna á Laugardalsvelli.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum.





