24.07.26 - 21:44
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea leiðir kappið um eftirsóttan Alajbegovic

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Chelsea er talið leiða kapphlaupið um kantmanninn Kerim Alajbegovic sem er aðeins átján ára gamall.

TENGT EFNI
Vilja fá vonarstjörnu Bosníu í stað Garnacho
Alajbegovic skein með Bosníu á heimsmeistaramótinu og er Bayer Leverkusen reiðubúið til að selja hann fyrir 40 milljónir evra.
Það er mikill áhugi frá Ítalíu, þar sem Leverkusen er búið að hafna tilboði frá Atalanta en Napoli og Juventus gætu einnig lagt fram tilboð.
Fleiri félög úr ítölsku og ensku deildinni hafa einnig verið nefnd til sögunnar en leikmaðurinn er með fimm ár eftir af samningi hjá Leverkusen.
Alajbegovic átti magnað tímabil á láni hjá RB Salzburg á síðustu leiktíð, þar sem hann kom með beinum hætti að 17 mörkum í 44 leikjum í öllum keppnum.