24.07.26 - 20:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bournemouth skoraði fjögur og Southampton vann

Mynd: EPA

Mynd: Bournemouth

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það var nokkuð um æfingaleiki sem fóru fram í dag hjá ýmsum stórliðum sem eru á upphafi undirbúningstímabilsins fyrir átök komandi leiktíðar.
Como og Paris FC gerðu 2-2 jafntefli þar sem Pablo Pagis setti bæði mörk Paris og komst Anastasios Douvikas á blað hjá lærlingum Cesc Fábregas í Como.
Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth lagði þá St. Pauli að velli eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik. Ben Doak byrjaði á bekknum en var skipt inná snemma vegna meiðsla hins tvítuga Remy Rees-Dottin.
Doak, sem var með Skotlandi á HM í sumar, jafnaði metin á 25. mínútu og náði táningurinn Harold William forystunni svo staðan var 2-1 í hálfleik.
Daniel Jebbison og Bafode Diakite komu inn af bekknum í hálfleik og gerðu út um viðureignina með sitthvoru markinu skömmu síðar, svo lokatölur urðu 4-1.
Bournemouth á leiki við Augsburg, Genoa, Real Betis og Mainz fyrir upphafsflautið á nýju tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Damion Downs skoraði þá eina markið í sigri Southampton gegn Braunschweig á meðan Monza hafði óvænt betur gegn Galatasaray þökk sé marki og stoðsendingu frá Patrick Cutrone.
Ainsley Maitland-Niles og Alejandro Gomes Rodriguez skoruðu mörkin í sigri Lyon gegn Wolfsburg, Freiburg lagði Derby County að velli og hafði Swansea betur gegn Udinese.
Nokkur stórveldi frá Sádi-Arabíu áttu einnig leiki. Malcom skoraði bæði mörkin í sigri Al-Hilal gegn suður-afríska stórveldinu Mamelodi Sundowns á meðan Matheus Goncalves gerði eina mark Al-Ahli í tapi gegn Vitoria Guimaraes.
Moussa Dembélé og Joao Costa komust að lokum á blað í jafntefli hjá Al-Ettifaq.
Como 2 - 2 Paris FC
1-0 Alessandro Gabrielloni ('26)
1-1 Pablo Pagis ('30)
1-2 Pablo Pagis ('36)
2-2 Anastasios Douvikas ('86)
Bournemouth 4 - 1 St. Pauli
0-1 Martijn Kaars ('22)
1-1 Ben Doak ('25)
2-1 Harold William ('37)
3-1 Daniel Jebbison ('47)
4-1 Bafode Diakite ('52)
Braunschweig 0 - 1 Southampton
Galatasaray 0 - 2 Monza
Wolfsburg 0 - 2 Lyon
Freiburg 3 - 1 Derby
Swansea 2 - 0 Udinese
Antwerp 3 - 0 Olympiakos
Elche 0 - 0 Johor DT
Al-Hilal 2 - 0 Mamelodi Sundowns
Al-Ahli 1 - 3 Vitoria Guimaraes
York City 2 - 2 Al-Ettifaq