24.07.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Besta deildin: Víkingur setti fimm gegn nýliðunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. 5 - 1 Keflavík
1-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('5 )
2-0 Stígur Diljan Þórðarson ('16 )
2-1 Þorlákur Breki Þ. Baxter ('46 )
3-1 Óskar Borgþórsson ('67 )
4-1 Tarik Ibrahimagic ('82 )
5-1 Ármann Ingi Finnbogason ('91 )
1-0 Karl Friðleifur Gunnarsson ('5 )
2-0 Stígur Diljan Þórðarson ('16 )
2-1 Þorlákur Breki Þ. Baxter ('46 )
3-1 Óskar Borgþórsson ('67 )
4-1 Tarik Ibrahimagic ('82 )
5-1 Ármann Ingi Finnbogason ('91 )
Lestu um leikinn: Víkingur R. 5 - 1 Keflavík
Íslandsmeistarar Víkings R. tóku á móti nýliðum Keflavík í Bestu deild karla í kvöld og komust í tveggja marka forystu snemma leiks.
Karl Friðleifur Gunnarsson náði forystunni með snyrtilegu skoti við vítateigslínuna eftir góða sókn heimamanna og tvöfaldaði Stígur Diljan Þórðarson forystuna með frábærri afgreiðslu ellefu mínútum síðar.
Víkingar voru sterkari aðilinn en tókst ekki að bæta þriðja markinu við þrátt fyrir tækifæri. Þess í stað svöruðu gestirnir með marki í upphafi síðari hálfleiks þegar Þorlákur Breki Baxter skoraði eftir mistök Oliver Ekroth í öftustu varnarlínu.
Keflvíkingar vöknuðu til lífsins við þetta mark og úr varð jafn leikur, en gæðin í liði heimamanna skiptu sköpum. Óskar Borgþórsson tvöfaldaði forystuna á ný þegar hann fylgdi marktilraun Helga Guðjónssonar eftir á 67. mínútu og gerði Tarik Ibrahimagic út um viðureignina á 82. mínútu eftir góðan undirbúning frá Aroni Elís Þrándarsyni sem vann boltann hátt uppi á vellinum.
Víkingar voru ekki hættir því Ármann Ingi Finnbogason setti fimmta og síðasta mark heimamanna í uppbótartíma. Lokatölur 5-1.
Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar með 43 stig eftir 16 umferðir, átta stigum fyrir ofan KR. Keflavík er um miðja deild með 19 stig.