Fotbolti.net
24.07.26 - 09:42
Elvar Geir Magnússon

Þjóðverjar kynna Klopp (Staðfest)

Klopparinn kátur á fréttamannafundi í morgun.

Klopparinn kátur á fréttamannafundi í morgun.

Canon

Mynd: EPA

Jurgen Klopp er mættur aftur í eldlínuna en hann hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Þýskalands til 2030.

Klopp tekur við af Julian Nagelsmann sem hrökklaðist úr starfi eftir tap gegn Paragvæ í 32-liða úrslitum HM.

Klopp var níu ár með stjórnartaumana hjá Liverpool og vann bæði Meistaradeildina og ensku úrvalsdeildina. Hann hefur starfað sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni síðan í október 2024.
Þurfa ekki að borga Red Bull fyrir Klopp
TENGT EFNI

Þurfa ekki að borga Red Bull fyrir Klopp

„Ekkert getur sameinað Þjóðverja betur en landsliðið. Þess vegna er þetta starf svo sérstakt í mínum huga," segir Klopp.

Hans fyrsti leikur með stjórnartaumana hjá Þýskalandi verður gegn Hollandi þann 24. september í Þjóðadeildinni. Samningur hans er út HM 2030 sem haldið verður í Marokkó, Portúgal og Spáni.
Bernd Neuendorf forseti þýska fótboltasamandsins, Jurgen Klopp landsliðsþjálfari og varaforsetinn Hans-Joachim Watzke.

Bernd Neuendorf forseti þýska fótboltasamandsins, Jurgen Klopp landsliðsþjálfari og varaforsetinn Hans-Joachim Watzke.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.