Fotbolti.net
24.07.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Hættur eftir að hafa stýrt átta leikjum - „Ómögulegt að halda áfram"

Defoe í leik með enska landsliðinu

Defoe í leik með enska landsliðinu

Canon

Mynd: EPA

Jermain Defoe, fyrrum leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, hefur óvænt verið látinn taka pokann sinn hjá enska utandeildarliðinu Woking eftir að hafa stýrt aðeins átta leikjum.

Defoe tók við liðinu undir lok síðasta tímabils og liðið vann tvo leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði einum leik í utandeildinni og hafnaði í 10. sæti.
Liðið vann einn og tapaði einum leik á undirbúningstímabilinu, sem er í fullum gangi, undir stjórn Defoe. Hann sendi frá sér yfirlýsingu eftir brottreksturinn.

„Ég get staðfest að ég hef samþykkt að hætta sem stjóri Woking. Því miður hafa aðstæður gert það að verkum að að það er ómögulegt fyrir mig að halda áfram," skrifaði Defoe.

„Ég er gríðarlega stoltur af starfinu sem ég vann og fannst við virkilega vera byggja upp eitthvað sérstakt. Ég er þakklátur stuðningsmönnunum og mikilvægast að öllu, miður mín fyrir hönd leikmanna."

Þetta var fyrsta stjórastarf Defoe en hann þjálfaði í akademíu Tottenham eftir að skórnir fóru á hilluna árið 2022.

„Tíminn minn hjá Woking hefur verið mikil reynsla og mun án efa styrkja mig fyrir næstu áskorun á ferlinum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.