Fotbolti.net
24.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nunez orðaður við Atlanta

Nunez orðaður við Atlanta
Canon

Mynd: Al Hilal

Darwin Nunez, leikmaður Al Hilal í Sádi-Arabíu, er að öllum líkindum á leið frá félaginu í sumar aðeins ári eftir komuna frá Liverpool síðasta sumar.
Nunez hefur ekkert spilað fyrir félagið síðan í febrúar en hann missti sætið sitt í hópnum vegna útlendingakvóta í deildinni eftir komu Karim Benzema til félagsins.

Hann gæti verið á leið til Atlanta United í bandarísku MLS deildinni en hann er í viðræðum við félagið. The Athletic greinir frá.

Það kemur einnig fram að bandaríska félagið hafi einnig áhuga á svissneska landsliðsmanninum Breel Embolo, leikmanni Rennes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.