24.08.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Kinsella til Aston Villa.(Staðfest)
Aston Villa gekk í gær frá kaupunum á Mark Kinsella leikmanni Charlton. Kinsella sem gerði tveggja ára samning við Villa er 30 ára gamall og er fjórðu kaup Villa í sumar. Kaupverð er talið vera 1,1 milljón punda á Kinsella sem lék alla leiki írska landsliðssins á HM. Hann lék yfir 200 leiki með Charlton á sex ára tímabili.
