Fotbolti.net
24.08.12 - 06:00
Sebastían Sævarsson Meyer
Ítalska deildin

Walter Gargano til Inter á láni (Staðfest)

Walter Gargano til Inter á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur fengið miðjumanninn Walter Gargano á láni út tímabilið frá Napoli með möguleika á kaupum næsta sumar.

Ef allt gengur eftir hefur leikmaðurinn samþykkt að skrifa undir fjögurra ára samning við Inter að tímabilinu loknu.
Þessi 28 ára Úrúgvæi hefur verið á mála hjá Napoli síðustu fimm ár, spilað 163 leiki fyrir félagið og skorað fjögur mörk.

Hann er sjötti leikmaðurinn sem Inter fær í sumar en áður hafði liðið fengið Rodrigo Palacio, Matias Silvestre, Samir Handanovic, Gaby Mudingayi og Antonio Cassano.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.