24.08.12 - 10:06
Magnús Már Einarsson
Cesar Azpilicueta til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Chelsea hefur keypt spænska hægri bakvörðinn Cesar Azpilicueta frá Marseille.
Talið er að Chelsea borgi í kringum sjö milljónir punda fyrir leikmanninn.
Hinn 22 ára gamli Azpilicueta hóf feril sinn hjá Osasuna en hann gekk í raðir Marseille árið 2010.

Azpilicueta mun æfa með Chelsea í fyrsta skipti í dag og hann gæti verið í leikmannahópnum gegn Newcastle á morgun.
Roberto Di Matteo, stjóri Chelsea, hefur verið í leit að nýjum hægri bakverði síðan Jose Bosingwa fór frá félaginu í sumar og hann hefur nú klófest Azpilicueta.