24.08.12 - 11:15
Magnús Már Einarsson
Matt Jarvis til West Ham á metfé (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur keypt vinstri kantmanninn Matt Jarvis frá Wolves en hann er nú dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi.
Talið er að kaupverðið sé í kringum 10,75 milljónir punda en fyrra metið hjá West Ham var níu milljónir punda sem félagið borgaði fyrir Savio Nsereko árið 2009.

Jarvis skoraði átta mörk í ensku úrvalsdeildinni með Wolves á síðasta tímabili og lék sinn fyrsta landsleik með Englendingum.
,,Ég er ánægður með að hafa skrifað undir. Þetta er frábært félag með mikla sögu og hefð,\" sagði Jarvis í morgun eftir að hann skrifaði undir.
Jarvis gæti hoppað beint inn í byrjunarlið West Ham gegn Swansea á morgun en hann mun leika í treyju númer sjö hjá félaginu.

Heimild: Sky