24.08.12 - 12:08
Daníel Freyr Jónsson
Steven Fletcher til Sunderland (Staðfest)

Steven Fletcher.

Mynd: Getty Images

Steven Fletcher.

Mynd: Getty Images
Steven Fletcher hefur klárað vistaskipti sín til Sunderland og skrifaði hann undir fjögurra ára samning nú í morgun.
Talið er að Sunderland greiði Wolves um 12 milljónir punda fyrir skoska framherjann og er það metfé hjá félaginu.
Fletcher skoraði 12 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, en það dugði þó ekki til að halda Wolves í deildinni. Hann gekk í raðir Úlfana árið 2010 frá Burnley.
Þetta er annar fastamaðurinn úr liði Wolves sem er seldur frá félaginu í dag eftir að Matt Jarvis gekk í raðir West Ham í morgun, einnig fyrir metfé. Samtals hefur Wolves því selt leikmenn fyrir yfir 20 milljónir punda í dag.
Fletcher eru þriðju kaup Sunderland í sumar á eftir þeim Carlos Cuellar og Louis Saha, en með brottför hans frá Wolves er ljóst að Björn Bergmann Sigurðarson muni fá fleirri tækifæri í framlínu liðsins.