Fotbolti.net
24.08.12 - 18:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Inter kaupir Alvaro Pereira frá Porto (Staðfest)

Alvaro Pereira.

Alvaro Pereira.

Canon

Mynd: Getty Images

Inter hefur fengið til sín bakvörðinn Alvaro Pereira frá Porto og greiðir fyrir hann um 10 milljónir evra.
Þetta staðfesti portúgalska félagið í morgun, en Pereira hafði verið orðaður við önnur félög í allt sumar. Hann var einnig næstum gengin í raðir Chelsea síðasta sumar.



Verðmat hins 26 árs gamla Pereira hefur þó lækkað frá því síðasta sumar, en ef hann nær ákveðnum leikjafjölda fyrir Inter gæti heildarkaupverðið numið um 15 milljónum evra.



,,Inter er draumur. Það er bara ekki hægt að ímynda sér hve mikið þetta félag er elskað og stutt í öðrum löndum. Inter er draumur allra leikmanna og jafnvel meira en það í Suður-Ameríku,\" sagði Pereira við komuna til Mílanóborgar.



Pereira gekk í raðir Porto árið 2009 og var lykilleikmaður í liðinu sem vann Evrópudeildina 2011, auk þess sem hann vann Copa America með Úrúgvæ sama ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.