24.08.12 - 16:22
Magnús Már Einarsson
Jón Guðni til GIF Sundsvall (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Jón Guðni Fjóluson hefur gengið til liðs við GIF Sundsvall í Svíþjóð en hann skrifaði undir þriggja og hálfs samning við félagið í dag.
Jón Guðni kemur til Sundsvall frá Beerschot í Belgíu en hann var ekki inni í myndinni þar.
Á dögunum æfði Jón Guðni einnig með Nordsjælland og Silkeborg í Danmörku en á endanum samdi hann við Sundsvall.

Jón Guðni er 23 ára gamall en hann gekk til liðs við Beerschot í fyrra eftir að hafa slegið í gegn hjá Fram.
Hann verður ekki eini Íslendingurinn hjá GIF Sundsvall því Ari Freyr Skúlason leikur einnig með liðinu sem er í níunda sæti í sænsku úrvalsdeildinni í augnablikinu.

Heimild: Heimasíða GIF Sundsvall