24.08.12 - 18:06
Daníel Freyr Jónsson
Ki Sung-yeung til Swansea (Staðfest)

Ki Sung-yueng.

Mynd: Getty Images

Ki Sung-yueng.

Mynd: Getty Images
Ki Sung-yeung er genginn í raðir Swansea eftir að félagið kláraði kaupin á honum frá Celtic nú seinnipartinn. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Ki er 23 ára gamall miðjumaður og kemur frá Suður-Kóreu. Hann hefur vakið talsverða athygli hjá Celtic og er hann nú orðinn dýrasti Suður-Kóreubúi í sögunni.
Hann mun þó ekki vera með Swansea sem mætir West Ham um helgina þar sem félagaskiptin voru ekki kláruð í tæka tíð.
Hjá Swansea mun Ki fá það hlutverk að fylla í skarð Joe Allen, sem seldur var til Liverpool fyrir skömmu.
Ki eyddi þremur árum í Skotlandi eftir að hafa komið frá FC Seoul í heimalandi sínu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið 47 landsleiki fyrir þjóð sína.