Fotbolti.net
24.08.12 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson

Alexander Tettey til Norwich (Staðfest)

Alexander Tettey í leik með norska landsliðinu gegn því enska.

Alexander Tettey í leik með norska landsliðinu gegn því enska.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich City er búið að kaupa norska miðjumanninn Alexander Tettey frá franska félaginu Rennes.

Tettey er búinn að skrifa undir tveggja ára samning með möguleika á eins árs samningsframlengingu að loknum tveimur árum.
Tettey er 26 ára gamall og hefur leikið í efstu deild í Frakklandi síðastliðin þrjú ár og er hann sjöundi leikmaðurinn sem kemur til Norwich í sumar.

Tettey mun ekki vera gjaldgengur í næsta leik Norwich sem verður gegn QPR á Carrow Road.

,,Ég er hæstánægður með að vera kominn með Alexander til félagsins og ég trúi því að hann verði mikilvægur hlekkur liðsins,\" sagði Chris Hughton, stjóri Norwich.

,,Hann er mjög góður leikmaður með mikla reynslu.\"

Tettey fæddist í Gana en flutti ungur til Noregs og hefur spilað fjórtán landsleiki fyrir norska landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.