24.08.12 - 20:03
Brynjar Ingi Erluson
Victor Moses til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest kaupin á enska framherjanum Victor Moses frá Wigan Athletic.
Moses, sem er 21 árs gamall kom til Wigan frá Crystal Palace árið 2010, en síðan þá hefur hann leikið 79 leiki og skoraði 9 mörk.
Hann hafði verið orðaður við Chelsea í allt sumar, en fyrir nokkrum dögum náðust samningar varðandi kaup á leikmanninum og borgar liðið níu milljónir punda fyrir enska framherjann.
Það lítur því út fyrir að veturinn verði Wigan erfiður, en liðið hefur misst tvo af lykilmönnum félagsins, en Hugo Rodallega fór frítt frá félaginu í sumar og gekk til liðs við Fulham.
Evrópumeistararnir hafa því eytt um 80 milljónum punda í félagaskiptiglugganum, en liðið hefur þegar fengið þá Eden Hazard, Cesar Azpilicueta, Oscar og Marko Marin.

Heimild: Sky