24.08.18 - 12:30
Magnús Már Einarsson
QPR fær tvo framherja úr úrvalsdeildinni á láni (Staðfest)

Tomer Hemed fagnar marki með Brighton.

Mynd: Getty Images

Tomer Hemed fagnar marki með Brighton.

Mynd: Getty Images
QPR hefur fengið framherjana Tomer Hemed og Nakhi Wells á láni fyrir baráttuna í Championship deildinni.
Hemed, sem er 25 ára Ísraelsmaður, kemur frá Brighton á láni en þar hefur hann skorað 33 mörk í 108 leikjum.
Wells kemur frá Burnley en félagið keypti hann frá Huddersfield á fimm milljónir punda fyrir ári síðan. Wells lék einungis tíu leiki á síðasta tímabili, alla sem varamaður.
QPR hefur byrjað nýtt tímabil hörmulega en liðið hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum og er með markatöluna 2-13. Steve McClaren, stjóri liðsins, vonast til að nýir leikmenn nái að hleypa lífi í sóknarleikinn.
„Það er matröð að spila gegn þeim. Ég er ánægður með að fá þá í liðið hjá okkur,\" sagði McClaren.