24.08.18 - 21:30
Gunnar Logi Gylfason
Viktor Segatta aftur til Stord (Staðfest)

Viktor Segatta til hægri

Mynd: Þróttur Vogum

Viktor Segatta til hægri

Mynd: Þróttur Vogum
Þróttur Vogum hefur gefið út tilkynningu um að Viktor Segatta sé farinn frá félaginu til Stord í 3. deildinni í Noregi þar sem leikmaðurinn mun klára tímabilið.
Viktor kláraði tímabilið í fyrra einnig með Stord en liðið er í fallbaráttu í 3. deildinni í Noregi.
Viktor hefur spilað 19 leiki í deild og bikar fyrir Þrótt á tímabilinu og hefur skorað 9 mörk í þeim leikjum.
Hann komst upp úr 3. deildinni með liðinu í fyrra og siglir liðið nú lygnan sjó um miðja 2. deild þar sem liðið er 9 stigum frá toppnum og 10 stigum frá fallsæti.
Jón Páll Pálmason þjálfar Stord.